Tíu ára útskriftarafmæli 10 bekkjar Dalvíkurskóla 1996
07.09.2006 11:15:22 / 10bekkur

Hvað er að gerast...

Ok ég skil ekki alveg hvað gerðist hérna, allavega datt bara albúmið út sem ég var búin að setja inn og var allt í lagi með fyrst. Jæja ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi og þar sem ég nenni ekkert að eltast við þetta ætla ég bara að setja inn slóðina á myndasíðuna þar sem Bjöggi er búin að setja inn fullt af myndum.

http://photobucket.com/

og þið bara loggið ykkur inn og skoðið myndirnar og þá getið þið líka setti inn fleiri myndir ef þið viljið.

notendanafnið er 10bekkur96 og lykilorðið er dalvik

Góða skemmtun yfir myndunum þær eru margar mjög flottar og skemmtilegar


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 23:11:16 / 10bekkur

tæknin aðeins að stríða...

andsk....

myndirnar af sjóstöng klikkuðu eitthvað, fuck ég veit ekki hvert þetta fór og guð hvað ég nenni ekki að setja þetta inn núna. þetta kemur bara á morgun eða hinn...

Góða nótt


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 23:08:59 / 10bekkur

Nýjar myndir

Sæl öll, Bjöggi sendi myndir, fullt alveg og þetta er víst bara byrjunin. En ég setti þetta inn kíkið á það þetta eru tvö albúm. kirkjugarðar og sjóstöng.

En endilega fleiri að senda inn myndir, voru ekki fleiri með myndavélar hvernig var það?

Jæja nóg um það, myndirnar tala sínu máli


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 22:32:40 / 10bekkur

Timburmenn??

Jæja þá er þetta búið. Voru einhverjir timburmenn??? Nei nei við höguðum okkur öll svo vel. En annars, ég skemmti mér rosalega vel og það var alveg æðislegt að hitta ykkur aftur. Þetta var ágætismæting en auðvitað saknar maður alltaf þeirra sem ekki komast.

En allavega endilega komið með komment, hvernig skemmtuð þið ykkur? og endilega sendið mér myndir, ég skelli þeim inn um hæl.

netfangið er annaðhvort bodinsdottir@hotmail.com eða nem.berglindoo@lbhi.is


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 21:57:38 / 10bekkur

lokaspretturinn

Nú er aldeilis farið að styttast í hittinginn, eru ekki allir komnir í svaka fíling?

Hérna er dagskráin aftur ef þið væruð kannski búin að gleyma henni!

Mæting við Dalvíkurkirkju kl 13:00-13:15

Farið inn í Árskógskirkjugarð kl.14:00

Sjóstöng kl. 15:00-18:00

18:15 Óvænt uppákoma – (Vonandi)

ca: 19:30 komið í sal bjsv. Dalvík og þar verður grillað og spjallað og drukkið og ......

Nefndin mun sjá um grillið og það sem því viðkemuren fólk þarf að hafa með sér sína eigin drykki .

Endilega hafið svo með ykkur myndir á tölvutæku eða bara venjulegar.

Já munið endilega eftir myndum það er bara gaman af því.....

Já og svo þarf líka að muna að leggja inn á Bjögga, ég held að ég sé búin að senda öllum númerið hans, sem skráðu sig hérna inn með netfangi.

Svo er nú hver að verða seinastur að senda inn pistil um sig, það er bara um að gera að setja eitthvað smá niður og senda og ekkert svona ,, ég er ekki búin að gera neitt merkilegt" það hafa allir gert eitthvað og það er merkilegt!

Jæja bara setja sig í gírinn og við sjáumst hress eftir nokkra daga


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 22:42:37 / 10bekkur

Skráningar

Jæja ég skrapp á landsmót um helgina og bjóst nú við meiri viðbrögðum... en það hafa kannski fleiri verið uppteknir og ekki við tölvuna. En mér finnst líka eitthvað óljóst hverjir ætla að mæta svo við skulum gera formlega skráningu hérna ok þeir sem ætla að koma skrá sig hérna í commentin ok þá sjáum við þetta svart á hvítu og bara sem flestir að skrá sig, því fleiri því betra


» 37 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 21:32:48 / 10bekkur

DAGSKRÁ

Þá er loksins komin dagskrá...... Þetta lítur bara spennandi út hvað finnst ykkur, og núna kemur svar við spurningunni hennar Kötu, það þarf hvort sem er að fara inn á strönd til að fara í kirkjugarðinn svo það er ekki bara verið að fara þangað til að fara á sjóstöng....

Mæting við Dalvíkurkirkju kl 13:00-13:15

Farið inn í Árskógskirkjugarð kl.14:00

Sjóstöng kl. 15:00-18:00

18:15 Óvænt uppákoma – (Vonandi)

ca: 19:30 komið í sal bjsv. Dalvík og þar verður grillað og spjallað og drukkið og ......

Nefndin mun sjá um grillið og það sem því viðkemuren fólk þarf að hafa með sér sína eigin drykki .

Endilega hafið svo með ykkur myndir á tölvutæku eða bara venjulegar.

 

Skráining hefst hér með á heimasíðunni eða í síma 862-4631.

 

Verð fyrir manninn er 4000 kr. (miðað við að ca 25 manns skrái sig).

Svo væri gott að greiða fyrirfram og leggja bara inn á reikning, en ég vil nú ekki setja númerið hérna inn svo ef þið skráði ykkur hérna á heimasíðuna þá setjið þið tölvupóstfang og ég sendi ykkur reikningsnúmerið um hæl eða þið skráið ykkur í síma og Bjöggi segir ykkur bara reikningsnúmerið sjálfur.


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 21:42:48 / 10bekkur

ÁFRAM STELPUR

Frábært Lóa mér líst vel á þig og gangi þér vel í prófi;)

Bleikur dagur, voru ekki örugglega allir í bleiku í dag, ég var allavega í bleikum brjóstahaldara:haha:

Til hamingju með afmælið Ásrún, fyrst ég var nú að byrja á svona afmæliskveðjum....

Já gott Bjöggi ég vil fara að fá eitthvað að skrifa hérna inn svo þetta verði ekki bara endalaust blaður í mér:$

Dugleg að commenta


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 21:15:39 / 10bekkur

Bara bull

Jæja ég fæ ekkert meira að vita um dagskránna, en þetta kemur allt í ljós. Ætli Reimar sé ekki bara á fullu að skipuleggja brúðkaupið sitt, en annars TIL HAMINGJU REIMAR og hafið þið Guðný það sem best í framtíðinni. Já og til hamingju Snorri með afmælið á laugardaginn. Ég get nú alls ekki óskað öllum í bekknum til hamingju með afmælið því það eru bara nokkrir sem ég veit hvenær eiga afmæli, hey þá segi ég bara til hamingju allir sem eiga afmæli í júní... En hvernig er þetta afhverju fæ ég ekkert meira að setja inn frá ykkur???

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 21:54:21 / 10bekkur

KOMIN AFTUR

Jæja þá er ég komin aftur heim frá New York og var að setja inn myndir frá seinasta hittingi sem Bjöggi sendi mér, kíkið á þær. Svo vil ég endilega fara að fá eitthvað meira frá ykkur, pistla eða myndir eða bara eitthvað.

Ég hef ekkert fengið að vita meira hvað við erum að fara að gera, það er kannski kominn tími á einhverja meiri dagskrá, hvað segið þið um það????

Já ég hef ekkert meira um það að segja svo bara endilega commentið eða sendið mér eitthvað sem ég get sett inn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 22:04:34 / 10bekkur

Ég auglýsi hér með eftir fleiri myndum

Jæja hvernig er þetta með ykkur!

Það er bara alveg stopp á pistlum. Endilega sendið nú eitthvað spennandi, já eða óspennandi skiptir engu. Og myndir endilega ef einhver á skemmtilegar myndir þá skannið inn og sendið mér ég skelli þeim inn um leið. Ég á engar myndir, þetta er náttúrulega bara skandall, ég þarf reyndar að kíkja í kassa og athuga hvort ég finni ekki bekkjarmyndina ég á að eiga hana einhverstaðar.

Ég sé að fólk er duglegt að kíkja hérna inn því heimsóknir á dag eru nánast alltaf allavega yfir 10 þegar ég kíki hérna inn svo endilega verið dugleg að commenta og láta ljós ykkar skína. Það er svo takmarkað sem ég hef að segja, ég hef ekki fengið að vita neitt meira en að dagurinn verður tekin snemma þegar við hittumst. Það á að byrja þarna um tvö eða þrjú og fara á sjóstöng svo bara veit ég ekki meira, svo það verður bara að koma í ljós.

En sumarið er komið svo það er styttist í að við hittumst!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:46:19 / 10bekkur

Helga Fríður að standa sig!

Hæ hæ

Ennþá bætist í hópinn.

Helga Fríður sendi inn texta um sig og það sem hún hefur verið að bralla undanfarið.  Sem er alls ekki lítið, fullt að gera hjá henni.

En hún sendi líka mjög flotta mynd af Mumma og smá texta líka, takk fyrir það. 

Svo þau eru komin inn.

Það væri flott að gera svona líka hjá Svenna, ég á flotta mynd af honum sem ég skanna bara inn.  En það verður einhverntímann í maí, því núna er ég að skila BSc ritgerðinni minni og nóg að gera...

En endilega haldið áfram að senda línur um ykkur því það er greinilegt að margir kíkja hérna inn, margar heimsóknir á dag.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 09:30:42 / 10bekkur

Viðar bætist í hópinn

Jæja þá er allt að gerast, Viðar bættist við í dag og hann er kominn inn með það sama.  Svo þið getið lesið um hvað hann er búin að vera að bralla undanfarið.

En er ekki annars kominn ótrúlegur spenningur í alla, með hækkandi sól og góðu veðri. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 21:26:33 / 10bekkur

Húni bætist í hópinn

Já þessar myndir frá Hörpu eru alveg snilld, og bara endilega ef þið hafið myndir í fórum ykkar þá bara að skanna þær inn og senda mér í tölvupósti eða ef svo heppilega vill til að þið hafið eitthvað á digital þá bara að senda beint!

En Húni var líka að senda inn smá pistil um sig, svo kíkið endilega á það.  Húni er náttúrulega alltaf jafn frábær.

En hvernig stendur á því að það eru miklu fleiri úr A bekknum búnir að senda inn!  Hvar er G bekkurinn eiginlega, vita þau ekki af síðunni? Hvernig er þetta, við verðum endilega að vera dugleg að láta þetta berast er það ekki???

Nei þetta er nú ábyggilega bara tilviljun;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 21:31:31 / 10bekkur

Myndir

Harpa var að senda myndir frá því við hittumst 1997 í Brekkuseli.  Ég skellti þeim bara öllum inn.  Kíkið á þær, ég ritskoðaði þær ekkert vonandi móðgast enginn!

Kveðja


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2